image image image image image
Best skreytta húsið Bæjarbúar eru hvattir til að skreyta hús sín eftir litnum á sínu hverfi.
Taktu þátt og þú gætir unnið vegleg grill frá Olís.


Tilnefndu það hús sem þér þykir best skreytt


Smelltu hér til að sjá nánar.
Sölu- og markaðstjöld Fjöldi einstaklinga kynna og selja handverk sitt og fyrirtæki kynna vörur sínar.

Aðstaða í markaðstjöldum á svæðinu er leigð út fyrir mjög sanngjarna upphæð til að tryggja það að sem flestir geti tekið þátt.

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að vera með bás í markaðs- og sölutjöldum að skrá sig hér.
Matarkista Suðurlands Lykilatriði hátíðarinnar er allur maturinn sem er í boði fyrir gesti og gangandi. Heilgrillað naut, heilgrillað svín, heilgrillað lamb.

Fjöldi annarra framleiðslufyrirtækja verða á svæðinu að kynna vörur sínar og þjónustu.
Tónlistarhátíðin Á kvöldin og nóttunni er pökkuð dagskrá af stórum tónlistaratriðum á inni- og útisviði. Þú finnur eitthvað við þitt hæfi!.

Tónlistarhátíðin sjálf á sér stað á kvöldin og stendur fram undir morgun. Vegleg dagskrá sem hentar ungum sem eldri verður í boði á tveimur sviðum samtímis. Stórt svið verður úti á bílaplani og einnig verður dagskrá innandyra í Hvítahúsinu.
Barnadagskrá Við leggjum mikla áherslu á góða, fjölbreytta og ókeypis barnadagskrá.

SVEPPI - BJÖRGVIN FRANZ OG STUNDIN OKKAR - BRÚÐUBÍLLINN - ÍÞRÓTTAÁLFURINN OG SOLLA STIRÐA - SKOPPA OG SKRÝTLA.

Þá má ekki gleyma söngkeppni barna sem er í boði Íslandsbanka.  Í verðlaun er veglegur Vaxtaþrep inneignarreikningar frá Íslandsbanka fyrir yngri og eldri hópa. Nánari upplýsingar hér.

Kótelettan verður haldin á Selfossi 10. - 12. júní

Bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíðin Kótelettan verður haldin um Hvítasunnuhelgina á Selfossi 10. - 12. júní n.k. Hátíðin er í samstarfi við Eimskip, Pepsi Max, Tuborg, EB Kerfi og fjölda annara fyrirtækja.

Í fyrra einkenndist hátíðin af góðum grill ilm sem lagðist yfir bæinn þegar bæjarbúar tendruðu grillin. Nú stefnum við á að gera enn betur með þessari stærstu grillveislu suðurlands.
Búist er við mikilli aðsókn gesta frá öllum landshlutum og skulum við taka vel á móti þeim og sýna þeim í þá matarkistu sem við sunnlendingar búum saman að. Fyrirtækjum og einstaklingum býðst að setja upp sýna egin sölu og kyningaraðstöðu. Hægt er að sækja um aðstöðu í sölu- og markaðstjöldunum hér.

Barna dagskráin er frábær þetta árið þar sem margar af bestu barnastjörnum landsins ætla að skemmta yngstu kynslóðinni. Tónleikahaldið er heldur ekki af verri endanum en segja má að rjóminn af íslensku tónlistarlífi muni láta sjá sig á Kótelettunni. Kynntu þér nánar um þá viðburði og afþreyingu sem verður í boði á Kótelettunni undir dagskrár flipanum hér að ofan.

 

Litaskipting hverfa á Selfossi.

Við hvetjum bæjarbúa til að taka þátt, skreyta hús sín í hverfislitum, grilla og bjóða vini og vandamenn velkomna á Selfoss. 
Best skreytta húsið verður svo verðlaunað með glæsilegu grilli frá OLÍS svo það er um að gera að taka þátt og sýna lit. 

Litaskiptingu má sjá hér.

plaggat